Fréttir | sunnudagur 8. ágúst 2010 | 18:15
Monty útilokar ekki að velja Langer
Skotinn Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum, útilokar ekki að gefa hinum 53 ára gamla Þjóðverja, Bernhard Langer, sæti í liði sínu þegar leikið verður á Celtic Manor vellinum í byrjun október. Langer hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu og vann tvo risatitla í keppni öldunga nú á dögunum.
“Ég ætla ekki að útiloka það að ég velji Bernhard,” sagði Monty. “Það væri ekki út í bláinn ef ég veldi hann í liðið. Að mínu mati er hann að leika sitt besta golf á ferlinum og hann er sammála því.”
Monty telur að mikil reynsla Langer sé lykillinn að velgengi hans að undanförnu og gæti hjálpað honum mikið ef hann fengi sæti í liði Evrópu. “Hann sagði eftir Opna bandaríska meistaramót öldunga að hann hefði notað allt sem hann lærði í Ryder-bikarnum á sínum tíma til að komast í gegnum stuðning áhorfenda við heimamenn. Ég held að það væri ekki dramatísk ákvörðun að hafa mann með svona mikla reynslu í liðinu. Ég þekki það af eigin raun að hann er góður félagi,” sagði Monty.
Lee Westwood hefur tryggt sér sæti í liðinu en gæti misst af Ryder-bikarnum vegna meiðsla sem hann hefur verið að glíma við að undanförnu. Það væri mikið áfall fyrir Evrópumenn enda hefur Westwood verið að leika sitt besta golf á ferlinum á undanförnu ári. Ljóst verður hvaða átta kylfingar hljóta sjálfkrafa sæti í liðum Evrópu og Bandaríkjanna, eftir PGA-meistaramótið sem leikið verður um næstu helgi.
Myndir/golfsupport.nl: Á efstu myndinni sjáum við Bernhard Langer og Colin Montgomerie hlið við hlið þegar Evrópa bar sigur úr býtum í Ryder-bikarnum árið 2004.