Fréttir | föstudagur 6. ágúst 2010 | 12:30

Woods ætlar að snúa mótinu sér í hag


Tiger Woods var langt frá sínu besta á WGC Bridgestone Invitational mótinu sem hófst á Firestone vellinum í gær. Mikið er undir hjá besta kylfingi heims sem gæti séð af efsta sætinu á heimslistanum þegar helgin er öll.

Woods lék aðeins betur en átta aðrir kylfingar í mótinu og er því á meðal neðstu manna. Hann vonast til að geta snúið mótinu sér í hag með öflugum öðrum hring. “Ég þarf að koma mér niður á parið og þá á ég möguleika um helgina,” sagði Woods við blaðamenn eftir hringinn í gær.??

Það var pirrandi að ég skildi ekki leika vel því ég mætti vel undirbúin til leks og hafði góð tilfinningu fyrir hringnum. Það eina sem var jákvætt var að ég hélt þolinmæðinni,” sagði Woods ennfremur en hann gat ekki fundið skýringu á því hvers vegna honum gekk ekki betur á velli þar sem hann hefur sjö sinnum hampað sigri. Hér að ofan má sjá viðtal við Woods eftir hringinn.

??Mynd/golfsupport.nl