Fréttir | þriðjudagur 3. ágúst 2010 | 11:49
Herramót GA haldið í fyrsta sinn
Golfklúbbur Akureyrar mun standa fyrir Herramóti í fyrsta sinn þann 7. ágúst næstkomandi á Jaðarsvelli. Fjölmörg kvennamót fara fram á ári hverju en minna fer fyrir herramótum. Hjá GA verður herramótið mótvægi við Hatta- og pilsamótið sem haldið er árlega.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni með forgjöf og einnig fyrir þrjú efstu sætin án forgjöf. Verðlaun verða m.a. frá Heimsferðum og Rub23 veitingahúsi. Veitt verða nándarverðlaun á 4., 6., 11., og 18. braut og í öðru höggi á 10. braut. Einnig verðu lengsta teighöggið á 15. braut verðlaunað.
„Herralegur klæðnaður“ er skilyrði fyrir þátttöku og verða veitt verðlaun fyrir „best klædda“ kylfinginn. Mótið er eingöngu fyrir karlmenn 20 ára og eldri og er mótsgjald 4.500 kr.-
Mynd: Fatnaður Eiðs Smára Guðjonshen er skólabókardæmi um hvernig á að klæða sig í Herramóti GA.