Fréttir | þriðjudagur 3. ágúst 2010 | 10:52

Karl lék á 75 höggum, 78 ára gamall!


Karl Gunnlaugsson, formaður GF til 25 ára er svo sannarlega flinkur kylfingur og var meðlimur í landliði eldri kylfinga um árabil. Þrátt fyrir að vera orðinn 78 ára gamall þá er hann ótrúlega seigur á golfvellinum og á dögunum tókst honum að leika á 75 höggum á Selsvelli á Flúðum.

Karl tók léttan æfingarhring fyrir Flúðasveppamótið sem fram fór 24. júlí síðastliðinn og lék eins og fyrr segir á 75 höggum eða fimm höggum yfir pari Flúðavallar. Í sjálfu mótinu lék hann svo á 79 höggum og sigraði í sínum öldungaflokki. Það er ekki amalegt að leika þremur höggum undir aldri.

Mynd/Kylfingur.is: Karl Gunnlaugsson hefur verið formaður GF frá upphafi.