Fréttir | mánudagur 2. ágúst 2010 | 19:50

Myndasafn frá Einvíginu á Nesinu


Ljósmyndari Kylfings.is var á ferðinni á Nesvellinum í dag þar sem Einvígið á Nesinu fór fram. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG fór með sigur af hólmi eins og áður hefur verið greint frá.

Nú eru alls 96 nýjar myndir frá mótinu komnar inn á ljósmyndavef Kylfings.is og lýsa vel þeirri stemmningu sem var á Nesvellinum í dag. Mikill fjöldi áhorfenda setti skemmtilegan svip á mótið og kylfingar léku oft á tíðum ögrandi golf sem jók skemmtanagildið.

Hér má sjá myndasafnið frá Einvíginu á Nesinu

Myndir/Kylfingur.is