Fréttir | mánudagur 2. ágúst 2010 | 11:16
Langer með tvo risatitla á átta dögum
Bernhard Langer er svo sannarlega heitur þessa dagana, en hann sigraði á sínu öðru risamóti á átta dögum þegar hann varð hlutskarpastur á Opna bandaríska öldungamótinu í gær. Þjóðverjinn knái lék mótið á átta höggum undir pari alls.
Langer, sem sigraði einnig á Opna breska í síðustu viku, hefur nú sigrað á fjórum mótum á Öldungamótaröðinni í ár, sem eru jafn mörg og í fyrra, og leiðir á tekjulista mótaraðarinnar.
Fred Couples varð í öðru sæti, þremur höggum á eftir Langer, en mótið fór fram í heimabæ hans Sahalee í Washington-fylki. Couples, sem er að leika á sínu fyrsta tímabili á Öldungamótaröðinni, er einnig annar á tekjulistanum á eftir Langer.
Þetta var í fyrsta sinn sem öldungur vinnur tvö risamót í röð frá árinu 2003, þegar meistari Tom Watson lék þann leik, en Langer er einnig fyrsti kylfingurinn frá meginlandi Evrópu til að sigra á Opna bandaríska.
Lokastaðan
Mynd/europeantour.com - Langer með sigurlaunin