Fréttir | sunnudagur 1. ágúst 2010 | 23:47
Metþátttaka hjá GN
Metþátttaka var á Neistaflugsmóti Golfklúbbs Norðfjarðar sem fór fram við ágætis aðstæður á Grænanesvelli í gær að því er fram kemur á heimasíðu klúbbsins.
Alls luku 111 kylfingar frá 22 klúbbum keppni og segir á vef GN að það sé það sé bæði mesti fjöldi sem keppt hefur í golfmóti á Austurlandi og eins hafi aldrei verið keppendur frá eins mörgum klúbbum á Neistaflugsmótinu.
Helstu úrslit voru eftirfarandi:
Opinn flokkur:
1. Brynjar Örn Rúnarsson GN á 43 punktum
2. Skarphéðinn Ívarsson GH á 42 punktum
3. Hermann Ísleifsson GBE á 42 punktum
4. Elvar Árni Sigurðsson GN á 41 punkti
5. Óttar Helgi Einarsson GKG á 39 punktum
Unglingaflokkur:
1. Óðinn Þór Ríkharðsson GKG á 77 höggum
2. Bogi Ísak Bogason GR á 82 höggum
Kvennaflokkur:
1. Birna Dögg Magnúsdóttir GH á 91 höggi
2. Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir GO á 93 höggum
3. Steinunn L. Aðalsteinsdóttir GN á 94 höggum
Karlaflokkur:
1. Ágúst Jensson GMS á 72 höggum
2. Bogi Nils Bogason GR á 73 höggum (e. bráðabana)
3. Hrafn Guðlaugsson GFH á 73 höggum.
Golfklúbbur Norðfjarðar þakkar Síldarvinnslunni h.f., Versluninni Útilíf í Reykjavík og Fjarðasporti Neskaupstað innilega fyrir frábæran stuðning við mótshaldið.
Vefur GN
Mynd frá Grænanesvelli