Fréttir | sunnudagur 1. ágúst 2010 | 17:38
Fisher sigraði á Opna írska
Englendingurinn Ross Fisher fagnaði sínum þriðja titli á Evrópumótaröðinni þegar hann varð hlutskarpastur á Opna írska mótinu í dag.
Fisher lauk leik á 18 höggum undir pari og stóð af sér stórsókn heimamannsins Padraig Harrington, sem var á 16 undir eftir að hafa leikið síðasta hringinn á 64 höggum.
Þetta ætti að gefa Ryder-vonum beggja kylfinga byr undir báða vængi, en nú fer að líða að lokasprettinum fyrir kylfinga til að vinna sig upp stigalistana eða inn í náðina hjá fyrirliðanum Colin Montgomerie.
Í þriðja sæti voru Gonzalez Fernandez-Castano og Chris Wood, á 14 höggum undir pari.
Lokastaðan
Mynd úr safni Golfsupport.nl