Fréttir | sunnudagur 1. ágúst 2010 | 13:19

Tiger mætir aftur til leiks í Dubai


Tiger Woods snýr aftur til Dubai í febrúar þar sem hann fer fyrir fríðum keppendahópi á Dubai Desert Classic-mótinu á Evrópumótaröðinni.

Tiger hefur fimm sinnum keppt á þessu móti frá árinu 2001 og hefur uppskeran verið góð. Hann hefur sigrað tvisvar, árin 2006 og 2008, og hefur aldrei endað neðar en fimmta sæti.

Þrengingarnar í efnahagsmálum Dubai hafa haft áhrif á hinn blómlega ferðamannaiðnað og er víst að forsvarsmenn mótsins sjá sér akk í þeirri miklu athygli sem þátttaka Tigers gefur þeim.

Tiger sjálfur sagðist hlakka mikið til að reyna að endurheimta titilinn.

"Þetta er frábær staður. Völlurinn er alltaf í óaðfinnanlegu ástandi og veðrið minnir mig á aðstæðurnar heima í Flórída."

Mynd/Golfsupport.nl - Tiger á fyrsta teig í Dubai árið 2008