Fréttir | sunnudagur 1. ágúst 2010 | 06:09

Video: Overton í lykilstöðu á PGA


Jeff Overton er enn í forystu á Greenbrier Classic á PGA mótaröðinni þó að tveir kylfingar hafi blandað sér í toppbaráttuna með magnaðri frammistöðu á þriðja hring.

Overton er alls á 18 höggum undir pari, þremur á undan D.A. Points sem lék á 61 höggi, eða níu undir pari vallarins, á þriðja hringnum. Það var þó ekki besti hringur dagsins því að J.B. Holmes tók sig til og spilaði á 60 höggum og er í fjórða sæti á 12 undir, ásamt tveimur öðrum kylfingum.

Staðan

Mynd úr safni Golfsupport.nl - Jeff Overton