Fréttir | laugardagur 31. júlí 2010 | 14:15

Pressel sló vallarmet á Birkdale - Tseng enn á toppnum


Hin bandaríska Morgan Pressel sló vallarmet á Royal Birkdale-vellinum fyrir stundu er hún lék þriðja hring á risamótinu Women‘s British Open á 65 höggum, eða sjö undir pari.

Keppnin hefur hingað til einkennst af erfiðu veðri, en Yani Tseng frá Taiwan leiðir mótið eins og er. Hún er á átta undir pari eftir fimm holur á þriðja hring, en Cristie Kerr, sem sigraði á Opna bandaríska mótinu um daginn, er á fimm undir.

Pressel, sem lék m.a. á sex undir pari á síðustu sex holunum, er nú á þremur undir og sagðist eftir hringinn vera búinn að koma sér aftur inn í mótið.

Keppnin verður þó erfið þar sem bæði Tseng og Kerr hafa unnið risatitla á síuðstu misserum auk þess sem fjöldi annarra stórkylfinga er enn í baráttunni.

Staðan

Myndir/Golfsupport.nl - Pressel og Tseng