Bookmark and Share

Fréttir | laugardagur 31. júlí 2010 | 11:19

Video: Overton leiðir á Greenbrier Classic


Jeff Overton er kominn með ríflegt forskot á toppi Greenbrier Classic á PGA mótaröðinni eftir tvo hringi.

Hann er á 14 höggum undir pari, en næstur honum er Boo Weekley, sem er á tíu höggum undir, en þá koma þeir Jimmy Walker og Erik Compton.

Meðal annarra nafntogaðra kylfinga á mótinu er Sergio Garcia, sem er að gera ágæta hluti og er á fimm undir pari, og John Daly sem er á þremur undir. Kenny Perry var hins vegar ekki að ná sér á strik og féll úr leik eftir að hafa leikið á þremur yfir pari.

Staðan

Mynd - Jeff Overton