Forsíða | laugardagur 31. júlí 2010 | 00:42

Fisher leiðir á Írlandi


Enginn ógnaði Ross Fisher á toppi Opna Írlandsmótsins í dag, en hann tók forystuna með öðrum hring upp á 61 högg, eða 10 undir pari. Þetta er besta skor Fishers á ferlinum, en hann er nú alls á 12 höggum undir pari, með þriggja högga forskot á næsta mann, Ítalann Fransesco Molinari.

Í þriðja sætinu, á sjö undir, er svo hópur manna, þar á meðal heimamaðurinn Padraig Harrington og Rory McIlroy frá N-Írlandi.

Annar heimamaður, Shane Lowry sem vann eftirminnilegan sigur á þessu móti í fyrra, er kominn upp í ágætismál á þremur undir, en hann rétti hressilega úr kútnum í dag með því að leika á 65 höggum eftir afleita spilamennsku á fyrsta hringnum.

David Howell, sem leiddi eftir fyrsta hringinn, missti flugið í dag, lék á 75 höggum og er kominn niður í 24. sæti.

Staðan

Mynd úr safni Golfsupport.nl