Bookmark and Share

Fréttir | föstudagur 30. júlí 2010 | 15:16

Frábær hringur skaut Fisher á toppinn


Englendingurinn Ross Fisher átti frábæran dag á Opna Írlandsmótinu á Evrópumótaröðinni í dag. Hann tyllti sér í toppsætið með því að leika á 61 höggi í dag, eða 10 undir pari, og er alls á 12 höggum undir pari eftir tvo hringi.

Hann er þremur höggum á undan Ítalanum Francesco Molinari, sem á raunar eftir að leika 6 holur í dag.

Fjölmargir kylfingar eru svo jafnir í þriðja sæti eins og er, á sjö undir pari, þar á meðal heimamaðurinn Padraig Harrington og kóreska undrabarnið Seung-yul Noh.

Staðan

Mynd úr safni Golfsupport.nl