Fréttir | fimmtudagur 29. júlí 2010 | 11:02

Woods mætir í titilvörnina á Firestone


Besti kylfingur heims, Tiger Woods, hefur staðfest að hann muni vera á meðal keppenda á WGC-Bridgestone Invitational mótinu sem fram fer 5.-8. ágúst næstkomandi. Hann á titil að verja í mótinu og en mætir til leiks án sigurs í ár sem er afar ólíkt Woods sem hefur verið gríðarlega sigursæll í gegnum tíðina.

Þetta er einn besti völlur sem við fáum að spila á hverju ári,“ sagði Woods á heimasíðu sinni. Hann lenti í 23. sæti á Opna breska meistaramótinu fyrir tveimur vikum og notar mótið sem undirbúning fyrir PGA-Meistaramótið sem hefst viku síðar á Whistling Straist vellinum.

Anthony Kim frá Bandaríkjunum verður einnig meðal keppenda en hann hefur ekkert keppt síðan í maí vegna meiðsla í þumalfingri.

Myndir/golfsupport.nl