Fréttir | þriðjudagur 27. júlí 2010 | 16:14
Reisa golfvöll í 2000 metra hæð!
Það eru stórhuga golfáhugamenn sem ætla að reisa golfvöll í 2000 metra hæð í Sviss. Völlurinn verður enginn venjulegur golfvöllur því hann er reistur í upp í miðjum fjallgarði í Adelboden í Sviss og notast verður við gervigras sem flatir, en flatirnar verður það eina sem líkist venjulegum golfvelli. Völlurinn verður líklega sá völlur sem er hæst yfir sjávarmáli í Evrópu en hann er ætlaður fyrir kylfinga sem vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Völlurinn verður 18 holur, par-3 og par-5 holur og mun vafalaust vera mikil áskorun, jafnvel fyrir bestu kylfinga heims. Aðstæður á vellinum verða talsvert aðrar en þær sem kylfingar hafa vanist til þessa því veðurfar getur breyst á örskotsstundu.
Nú þegar er farið að taka við pöntunum og það er ekki á hverjum degi sem kylfingar geta leikið golf upp í miðju fjallgarði en hótel er staðsett nærri vellinum. Fyrir þá sem vilja fá frekari upplýsinga um völlinn er bent að hafa samband við info@thecambrianadelboden.com.