Fréttir | mánudagur 26. júlí 2010 | 09:52

Petterson tryggði Svíum tvennuna


Carl Petterson stóðu uppi sem sigurvegari á Canadian Open mótinu sem lauk á PGA-mótröðinni í gær. Með sigrinum náði hann að tryggja Svíum tvennuna en Richard Johnson vann Sandinavian Masters mótið á Evrópumótaröðinni í gær.

Petterson lék frábært golf í seinni helming mótsins eftir að hafa verið tæpur um að komast í gegnum niðurskurðinn. Hann lék þriðja hringinn á 60 höggum og vann mótið með einu höggi. Petterson hafði betur gegn Dean Wilson sem fékk par á lokaholunni en með fugli hefði hann getað jafnað þar sem Petterson þrípúttaði.

Aðeins þrisvar á síðustu fjórum árum hefur kylfingur sem er alveg við niðurskurðarlínuna náð að tryggja sér sigur á mótaröðini. Luke Donald varð þriðji.

Lokastaðan

Mynd/golfsupport.nl