Hleð inn spilara...
Fréttir | sunnudagur 25. júlí 2010 | 22:48
VefTV: Draumurinn rætist hjá Tinnu
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili segir að það sé draumur að rætast með að verða Íslandsmeistari í höggleik. Hún hefur tvisvar orðið í öðru sæti og hafði beðið nokkuð eftir því að bæta nafni sínu á Íslandsmeistaratitilinn. Mikil spenna var í kvennaflokki og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokaholunni þar sem Tinna sló nær alveg inn á flöt og tryggði sér sigurinn með að setja niður gott pútt fyrir fugli.
Í viðtali við vefsjónvarp Kylfings.is segir hún að bætt frammistaða á flötunum og betra líkamlegt form sé lykillinn að bættum árangri í sumar en Tinna hefur nú unnið tvö mót í röð á Eimskipsmótaröðinni.
Mynd/Kylfingur.is
