Fréttir | sunnudagur 25. júlí 2010 | 10:56

Tinna: Hef prufað annað sætið


Ég er mjög ánægð með hringinn í gær en missti óþarflega mörg högg á 17. holu,” sagði Tinna Jóhannsdóttir úr Golfklúbbnum Keili. Hún lék á 71 höggi í gær eða á pari Kiðjabergsvallar í Íslandsmótinu í höggleik. Þar með jafnaði hún vallarmetið á vellinum.

Það gekk nánast allt upp í gær og ef það var einhvern timan góður dagur til að eiga góðan hring þá var það í gær. Markmið dagsins var að halda sér í baráttunni og það tókst,” segir Tinna sem tvisvar hefur orðið í öðru sæti í mótinu.

Ég hef prufað annað sætið og núna væri gaman að prufa fyrsta sætið. Þetta er spurning um að hafa svolítið sjálfstraust og trú á að maður geti þetta og það minnkaði allavega ekki við hringinn í gær,” sagði Tinna og hló.

Myndir/Kylfingur.is