Hleð inn spilara...
Fréttir | laugardagur 24. júlí 2010 | 21:57
VefTV: Einfalt og stöðugt hjá Sigmundi
Sigmundur Einar Másson úr GKG setti niður gott pútt á lokaflötinni sem tryggði honum forystu í Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Kiðjabergsvelli. Sigmundur hefur verið afar stöðugur í sinni spilamennsku og leikið alla hringina á 71 höggi eða pari vallarins.
Það skilar honum eins höggs forystu en Sigmundur varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina sinn árið 2006 þegar leikið var á Urriðavelli. Hann hefur verið í baráttunni á undanförnum árum og fær nú gullið tækifæri til að bæta nafni sínu öðru sinni á Íslandsbikarinn.
Mynd/Kylfingur.is
