Hleð inn spilara...
Fréttir | laugardagur 24. júlí 2010 | 21:09
VefTV: Hlynur ætlar að nýta tækifærið
Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbnum Keili, telur að hann verði að nýta tækifærið á að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Hlynur lék á 70 höggum á Kiðjabergsvelli í dag eða einu höggi undir pari vallarins.
Þar með er Hlynur kominn í annað sætið í mótinu á samtals einu höggi yfir pari og leikur í lokaráshópnum á morgun. Hann sagðist hafa dreymt um að leika í lokaráshópnum í vikunni og sá draumur hefur því orðið að veruleika.
Mynd/Kylfingur.is
