Forsíða | fimmtudagur 22. júlí 2010 | 17:01
Pétur Óskar hinn íslenski Villegas
Pétur Óskar Sigurðsson, kylfingur úr GR, lék fyrsta hringinn í Íslandsmótinu í höggleik á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Það var hins vegar ekki leiftrandi frammistaða hans sem vakti athygli á vellinum, heldur skemmtileg aðferð hans til að lesa flatirnar á Kiðjabergsvelli.
Hann notaði hina skemmtilegu kóngulóaraðferð sem Camilo Villegas hefur gert nokkuð fræga á stóru mótaröðunum en það er nokkuð ljóst að Villegas er nokkuð liðugri en Pétur Óskar. Aðferðin var virkaði vel fyrir Pétur Óskar á 15. flöt þar sem hann las púttlínuna hárrétt og náði að bjarga pari.
Mynd/Kylfingur.is
