Fréttir | fimmtudagur 22. júlí 2010 | 11:36
Birgir Leifur og félagar farnir af stað
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hóf leik nú fyrir skömmu á Kiðjabergsvelli. Hann leikur ásamt núverandi Íslandsmeistara, Ólafi Birni Loftssyni úr NK, og Erni Ævari Hjartarsyni úr GS en samanlagt hafa þessir kappar unnið fimm Íslandsmeistaratitla.
Birgir Leifur sagði í samtali við Kylfing.is að um sig færi nokkur fiðringur að vera mættur aftur til leiks í Íslandsmóti en hann hefur ekki verið með síðan hann lék á Hvaleyrarvelli árið 2007.
Birgir, sem leikið hefur á Evrópumótaröðinni á undanförnum árum, hefur verið meiðslum hrjáður á undanförnum mánuðum og var síðastliðið haust greindur með brjósklos í baki. Hann er óðum að jafna sig og vonast til að ná sér að fullu þegar hann fer í úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina í haust.
Myndir/Kylfingur.is