Fréttir | fimmtudagur 8. júlí 2010 | 10:17
Björn Steinar fór holu í höggi á Húsatóftavelli
Björn Steinar Brynjólfsson varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fara holu í höggi á fyrsta degi meistaramóts GG. Draumahögginu náði hann á 13. holu vallarins sem er par 3, 138 metrar. Hann notaði sandjárn í verkið og lýsti því þannig
„Ég var að hugsa um að nota PW en þar sem vindurinn stóð verulega með brautinni, ákvað ég að nota sandjárnið. Boltinn lenti nokkra metra frá holunni og hélt ég bara að hann væri að fara framhjá þegar hann fékk hliðarhopp og fór beint í holuna.“
Félagar hans í ráshópnum, þeir Páll Axel Vilbergsson og Einir Logi Eiðsson, voru allan tímann með það á hreinu að þessi færi í holuna. Björn Steinar er með 24 í forgjöf og leikur í þriðja flokki hjá GG. Kylfingur.is óskar honum til hamingju með þetta frábæra högg.
Myndir/GG