GS_opindagur.leiran.2012mai


Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 26. apríl 2010 | 11:09

Jákvætt sjálfstal er mikilvægt


Nú er golfsumarið að hefjast af fullum krafti. Æfingasvæði höfuðborgarsvæðisins hafa verið mjög vel nýtt í vetur og er það hið besta mál. Þeir kylfingar sem hafa æft reglulega í vetur ættu að koma vel undirbúnir til leiks þetta vorið. Það tekur hins vegar alltaf tíma að venjast því að fara af mottunum og útá völl þar sem kylfingar þurfa að venjast því aftur að slá ekki alltaf af rennisléttu svæði. Hafið engar áhyggjur þó svo að slátturinn á fyrsta hring sé ekki jafn góður og af mottunum í vetur. Það tekur tíma að venjast grasinu og það verður örugglega betra strax á öðrum hring.

Ég hef orðið var við að margir kylfingar tala neikvætt við sjálfan sig þegar þeir eru að æfa sig og spila. Hér á eftir ætla ég að nefna nokkur dæmi og gefa ykkur ráð um hvernig þið eigið að tala við ykkur þegar þið æfið eða spilið golf.

Neikvætt sjálfstal
Neikvætt sjálfstal er algengt hjá mörgum kylfingum. Hver kannast ekki við þessar setningar í huga sínum á teig.“ Passaðu þig á vatninu“ „ ekki slá til hægri“ „ ekki slá out of bounds“ „ ekki slæsa“ og svo framvegis. Þetta er einnig algengt á æfingasvæðunum. Ég hef oft heyrt setningar á borð við „Ekki líta upp“ „Ég lyfti hausnum alltaf upp í aftursveiflunni“ „Ég klára aldrei framsveifluna“ o.s.frv. Ef kylfingar tala svona við sig eru miklar líkur á að hluturinn gerist eða að kúlan fari þangað sem þú ætlar að passa þig að slá ekki á. Um leið og menn segja hlutinn sem þeir ætla að passa sig á eru yfignæfandi líkur á að hluturinn gerist.

Jákvætt sjálfstal
Ég skora á ykkur að prófa að einbeita ykkur að hlutunum sem þið ætlið að gera. Í stað þess að tala um að passa sig á hættunum ættu menn að segja „Ég ætla á braut“ „Ég ætla að slá beint“ eða „ég ætla inná flöt.“ Á æfingasvæðinu ættu menn að tala jákvætt um sjálfan sig. Í stað þess að tala um það sem þið ætlið ekki að gera ættu menn að segja „Ég ætla að horfa á boltann“ „Ég ætla að halda hausum niðri í aftursveiflunni“ „Ég ætla að klára framsveifluna og komast í lokastöðuna“ o.s.frv.

Þegar menn koma á teig eiga menn að einblína á þann stað sem þið ætlið að slá á. Horfið á staðinn sem þið ætlið að slá á og útilokið önnur svæði. Ef einbeitingin fer öll á staðinn sem þið ætlið á eru meiri líkur á að þið hittið þann stað. Ef höggið klikkar, þá er ekkert annað í stöðunni en að reyna að bjarga sér. Jákvæður hugsunarháttur hjálpar mikið í golfi eins og í lífinu sjálfu. Ég skora á ykkur að hugsa um hlutina sem þið ætlið að gera eða staðinn sem þið ætlið að senda kúluna á. Forðist að byrja setningar á „ekki“ og byrjið þær heldur á að segja „ ÉG ÆTLA AÐ........“

Ég er sannfærður um að þetta hjálpar ykkur að slá betri högg þegar jákvætt sjálfstal á sér stað. Gleðilegt golfsumar og vonandi nýtið þið það vel með jákvæðu hugarfari og sjálfstali.
Kveðja, Siggi Palli.