Meistaradeildin | sunnudagur 11. apríl 2010 | 12:10
Meistaradeildin: Reglugerð 2010
Meistaradeildin í golfi
Reglugerð 2010
Þátttakendur:
Heimild til þátttöku hafa kylfingar sem við upphaf mótaraðarinnar hafa forgjöf frá 3,5 til 20,4 og hafa náð 18 ára aldri. Meistaradeildin er vettvangur fyrir kylfinga sem vilja keppa og hafa gaman af keppni. Þátttakendur þurfa að vera vanir kylfingar og geta haldið uppi ásættanlegum leikhraða í spennuþrunginni keppni. Eins og forgjafarmörk gefa til kynna hafa bestu afreksmenn ekki rétt til þátttöku. Því er keppnin hugsuð sem vettvangur fyrir keppnismenn – en ekki endilega afreksmenn.
Forgjöf:
Hámarks gefin forgjöf er 18 högg, eða 1 högg á holu. Að öðru leyti ræðst vallarforgjöf skv. reglum EGA. Holukeppni er leikin með fullri forgjöf að hámarki 18.
Teigar:
Karlar leika af gulum teigum, konur af rauðum teigum.
Liðsskipan:
Fjórir leikmenn skipa lið. Heimilt er að skrá tvo varamenn til leiks. Hver leikmaður má aðeins leika með einu liði og sama gildir um varamenn. Hvert lið skipar fyrirliða sem er ábyrgur fyrir sínu liði, og sér um samskipti við mótsstjóra. Hverju liði er skylt að hafa nafn. Mælst er til að liðsmenn klæðist sama lit í keppni. Liðum er heimilt að hafa styrktaraðila og bera auglýsingar á búningum sínum.
Keppnin reynir ekki aðeins á golfhæfileika, heldur einnig herkænsku. Uppstilling liðsins getur verið það sem skiptir höfuðmáli.
Keppnisfyrirkomulag:
Leikið er í 4 liða riðlum. Leiknar eru 3 umferðir. Efstu tvö liðin úr hverjum riðli komast í úrslit.
Leikdagar (mánudagar):
17. maí – GÞ kl. 17:30
31. maí - GS kl. 17.30
14. júní – GKB kl. 17:30
28. júní –GS úrslit
(Miðað er við að ná að lágmarki 16 liðum en að hámarki 40 liðum) Verði þátttaka umfram 20 lið, verður að skipta umferðum, þannig að leikdagar verða fleiri.
Riðlakeppni
Holukeppni:
Leikin er holukeppni milli liða – bæði með og án forgjafar.
Sex vinningar eru í boði í hverjum leik.
- Tveir liðsmenn leika “tvímenning” (singles) 2 x 9 holur. Skipt um mótherja eftir 9 holur. Tveir leikjanna skulu leiknir án forgjafar og tveir með forgjöf. Allar holur telja þannig að hægt er að vinna 9-0, 8-1, 7-2, o.s.frv. Fjögur stig í boði í tvímenningi, tvö í hvorum leik.
- Tveir liðsmenn leika saman, fjórmenning holukeppni á fyrri 9 (1- stig), betri bolti með forgjöf, holukeppni á seinni 9 (1 - stig), samanlagðir punktar með forgjöf. Eins og í tvímenningnum, þá telja allar holur.
- Hér skal tekið til greina að lið getur sent einungis 3 menn til leiks í umferð. Þá mun einn leikmaður leika á móti tveimur fjórmenningi.
- Liðum sem skrá til leiks varamann/menn, er heimilt að skipta þeim inná, eftir 9 holu leik, þ.e. á milli umferða
- Fái hvorugt lið Stableford punkt á holu, hvort sem er með eða án forgjafar, þá fellur holan.
Þegar leik er lokið þá hefur lið bæði unnið sér inn stig og hefur “markatölu” sem í raun eru samanlagðar holur unnar og tapaðar í heildina. Þannig getur lið sem ekki tapar einni einustu holu haft í lok umferðar 6 stig og markatöluna 54-0.
Tvö efstu liðin í hverjum riðli að loknum þremur umferðum komast í Úrslit. Séu lið jöfn að stigum, ræður markatala, sé hún jöfn ræður innbyrðis viðureign. Sé enn jafnt, shootout frá 100 m. frá flöt á 18. braut þess vallar þar sem 3. umferð er leikin.
Aukaverðlaun í hverri umferð
Nándarverðlaun:
Á tveimur par 3 holum í hverri umferð
Úrslitaumferð:
Leikinn er 18 holu Skinnaleikur (e. skins game). Tvö efstu liðin úr hverjum riðli komast í úrslitaumferðina. Fjórir leikmenn leika fyrir hönd hvers liðs í einu. Heimilt er að skipta inná varamanni eftir 9 holu leik. Holurnar 18 fá stigavægi sem verður þannig (ath í röð leikinna hola:
1. leikin braut 100 stig 10. leikin braut 500 stig
2. leikin braut 100 stig 11. leikin braut 500 stig
3. leikin braut 100 stig 12. leikin braut 500 stig
4. leikin braut 300 stig 13. leikin braut 700 stig
5. leikin braut 300 stig 14. leikin braut 700 stig
6. leikin braut 300 stig 15. leikin braut 700 stig
7. leikin braut 500 stig 16. leikin braut 1000 stig
8. leikin braut 500 stig 17. leikin braut 1000 stig
9. leikin braut 500 stig 18. leikin braut 1700 stig
Samtals 10.000 stig.
Sigurliðið fær í mótslok til varðveislu Meistaradeildarbikarinn.
Bikarkeppni:
Bikarkeppni Meistaradeildarinnar verður auglýst síðar.
Aukamót. – Höggleikur – einstaklings og liðakeppni.
Liðið sem þar ber sigur úr býtum verður Bikarmeistari Meistaradeildarinnar.
Leikdagar:
Leikdagar verða á virkum dögum. Leikur hefst á 18 holu velli utan höfuðborgarsvæðisins kl. 17:30 stundvíslega. Ræst er út af öllum teigum í einu.
Vellir:
Hólmsvöllur í Leiru
Þorláksvöllur í Þorlákshöfn
Kiðjabergsvöllur í Grímsnesi
Aðrir vellir gætu bæst við verði þátttaka mikil.
Viðurlög:
Mæta of seint
Mæta ekki til leiks - sekt
Leikið á rangri forgjöf
Ósæmileg framkoma.
Athygli leikmanna er vakin á því að holukeppni á það til að kalla fram mun hærra spennustig en almennt gerist í höggleik.
Þátttökugjald:
Þáttökugjald fyrir alla mótaröðina er kr. 9.000 á mann eða 36.000 kr. á lið. Kjósi lið að skrá til leiks varamann kostar það kr. 4.000 til viðbótar. Heimilt er að skrá til leiks 2 varamenn í hvert lið. Ath. heildarkostnaður á mann, skrái lið 6 menn er kr. 7.333 á mann. Reynsla síðastliðins árs sýndi að flest lið bættu við varamanni/mönnum í 2.-4. umferð
Upplýsingar um stöðu:
Allar upplýsingar og stöðu verður að finna á vefsíðunni www.meistaradeildin.is og www.kylfingur.is .
Dregið í riðla – kynningarfundur:
Dregið verður í riðla á opnum fundi þann 10. maí. Keppendum er öllum boðið að mæta á fundinn til að meta andstæðingana. Umgjörð mótsins verður kynnt nánar við þetta tilefni.
Sameiginlegur kvöldverður að leik loknum:
Á 19. holu viðkomandi vallar verður boðið uppá mat og mjöð á sanngjörnu verði.
Umsjónaraðili:
Umsjónaraðili Meistaradeildarinnar er 3pútt ehf. Mótsstjóri er Margeir Vilhjálmsson. margeir@3putt.is, gsm 866-2100.
Skráning:
Tekið er við skráningu liða á netfangið margeir@3putt.is. Skráning fer fram frá 8. til 30. apríl.
Skráning er gild þegar þátttökugjald hefur verið greitt inn á reikning 1109-26-1884 kt. 530407-0630.
Gefa þarf upp við skráningu:
Nafn liðs
Nafn fyrirliða
Nöfn leikmanna, kennitölur, golfklúbb og forgjöf, netfang og símanúmer