Meistaradeildin | mánudagur 5. apríl 2010 | 00:07
Meistaradeildin 2010 - skráning er hafin

Meistaradeildin var haldin í fyrsta skipti síðastliðið sumar og tókst með eindæmum vel. Tuttugu lið skráðu sig til keppni og var hart barist, en að lokum var það lið kylfings.is sem bar sigur úr býtum eftir harða baráttu við lið Naloh. Leiknar voru fjórar umferðirr á þremur völlum, Leirunni, Þorlákshöfn og Kiðjabergi.
Fyrirkomulagið, liðakeppni þar sem leikin er holukeppni, 9 holur var mjög vel lukkuð, en því miður var lokaumferðin - úrslitakeppnin ekki eins vel heppnuð - því aðeins efstu tvö liðin fengu fulla skemmtun út úr þeim degi. Því hefur verið ákveðið að breyta úrslitaumferðinni, þannig að öll lið sem komast í úrslit eigi möguleika á sigri, allt til enda. Í úrslitaumferðinni verður nú leikinn Skinnaleikur (e. Skins game), þar sem 10.000 stig verða undir á 18 holum.
Fjórir leikmenn úr hverju liði leika í Skinnaleiknum. Heimilt verður að skipta inná varamönnum eftir 9 holu leik. Það lið sem nær að safna flestum stigum ber sigur úr býtum og verður sigurvegari í Meistaradeildinni árið 2010. Fjárhæð sem nemur fjölda stiga sem sigurliðið safnar verður afhent góðgerðarsamtökum sem sigurliðið velur.
Tvö efstu liðin úr hverjum riðli eftir 3 umferðir, komast í úrslitin.
Þátttökugjald fyrir árið 2010 er krónur 36.000 á lið sem 4 leikmenn eru skráðir í. Hver aukamaður kostar 4.000 kr.
Skráning hefst n.k. föstudag á netfangið: margeir@3putt.is. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir ef einhverjar eru.
Leikdagar og endurbætt reglugerð fyrir árið 2010 verður birt hér á síðunni á næstu dögum. Meðfylgjandi myndband sýnir svo ekki er um villst að það er gaman að leika í Meistaradeildinni.