Fréttir | sunnudagur 14. mars 2010 | 23:03

Els sigraði á Doral


Ernie Els sigraði örugglega á CA Championship heimsmótinu sem lauk rétt í þessu á Doral í Flórída, en hann skákaði landa sínum Charl Schwartzel á lokahringnum eftir að þeir hófu leik í dag jafnir.

Els lék óaðfinnanlega í dag og kom í hús á sex höggum undir pari, en hann fór hringina fjóra alls á átján höggum undir pari. Schwartzel var fjórum höggum á eftir, en hann lék á tveimur höggum undir í dag.

Keppnin var tvísýn allt fram að fimmtándu holu þegar Schwartzel fékk skolla og svo annan til á sautjándu en þar fékk Els fugl og gerði út um mótið.

Jafnir í þriðja sæti, á 11 höggum undir pari, voru Matt Kuchar, Padraig Harrington og Martin Kaymer.

Þessi úrslit hljóta að vera Els mikill léttir eftir rúmlega tveggja ára lægð þar sem hann hefur ekki unnið sigur á alvöru móti frá í febrúar 2008. Hann hefur lagt hart að sér við æfingar að undanförnu og látið af heimshornaflakki sem hefur einkennt feril hans hingað til og það virðist skila sér og "Big Easy" er til alls líklegur í framhaldinu.

Lokastaðan