Fréttir | sunnudagur 14. mars 2010 | 10:16

Tseng sigraði í Ástralíu


Yani Tseng lék stórkostlega í morgun og nýtti sér afleiki Karrie Webb á lokahring Opna ástralska mótsins á Evrópumótaröð kvenna og fagnaði glæstum sigri.

Tseng, sem er frá Taiwan, spilaði á 66 höggum, eða sjö undir pari í dag og lauk leik á níu undir pari, þremur á undan Lauru Davies sem hafði titil að verja í þessu móti.

Webb, sem var í góðri stöðu eftir þriðja hringinn, átti hins vegar slæman dag þar sem hún spilaði á 74 höggum, eða einu yfir pari , og lauk leik í þriðja sæti á fimm undir pari.

Höggi á eftir henni, jafnar í fjórða til fimmta sæti, voru Katherine Hull og Giulia Sergas.

Lokastaðan

Mynd/Golfsupport.nl - Yani Tseng á teig í morgun - Tseng með bikarinn eftirsótta.