Fréttir | sunnudagur 14. mars 2010 | 09:54
Loks styttir upp í Puerto Rico
Hlutirnir eru farnir að skríða áfram á Puerto Rican Open á PGA mótaröðinni þar sem gríðarlegar rigningar hafa sett heljarinnar strik í reikinginn. Þegar þrír hringir ættu að vera yfirstaðnir, er einungis rétt um helmingur keppenda farnir af stað á öðrum hring.
Þegar er ljóst að mótið mun teygjast fram á morgundaginn en góðu fréttirnar eru að rigningunni hefur loks slotað og brautir og flatir eru óðum að þorna i hitabeltissólinni.
Chad Collins er efstur eins og er, en Bandaríkjamaðurinn er á níu höggum undir pari eftir 11 holur á öðum hring. Lítið er annars að marka stöðu manna á mótinu, en John Daly lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða 3 undir pari.
Staðan