Forsíða | laugardagur 13. mars 2010 | 19:36

Margir í vetrargolfi á Hellu


Margir golfþyrstir kylfingar hafa sótt opna golfvelli undanfarna daga í veðurblíðunni sem hefur ríkt. Mest hefur aðsóknin verið á Strandarvöll á Hellu og þarf hafa fjölmargir verið við golfiðkun síðustu daga.

Hólmsvöllur í Leiru er ekki opinn á sumarflatir þessa dagana en þó voru all margir sem mættu í golf í gær og í dag, einnig í Sandgerði og sjá mátti nokkra á Setbergsvellinum í dag. Ekki er vitað annað en að opið sé á Þorláksvelli í Þorlákshöfn en hann tekur alltaf við gestum og ætti að vera meira sóttur miðað við gæði vallarins.

Fréttamaður kylfings hitti GR-ingana Heimi og Jón H.Karlssyni og tvo félaga þeirra á Selfossi síðdegis í gær en þá voru þeir að koma frá Hellu. Þeir sögðu aðstæður fínar á Strandarvelli, völlurinn væri aðeins blautur en að öðru leyti fínn. Þeir félagar hafa spilað Helluna tvisvar í mánuði í des, jan og febrúar og sögðu yndislegt að geta spilað í svona góðu veðri um vetur.