Forsíða | laugardagur 13. mars 2010 | 18:54

Rúmlega 80 manns á Vorráðstefnu SÍGÍ


Rúmlega 80 manns voru viðstaddir fyrri dag vorráðstefnu Samtaka íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi (SÍGÍ), en hún var sett í höfuðstöðvum KSÍ kl. 15 í gær. Var dagurinn að mestu leyti tileinkaður byggingu knattspyrnuvalla og auðséð á erindunum að sá geiri hérlendis er að taka stöðugum framförum.

Einar Friðrik Brynjarsson, tæknisérfræðingur hjá Tækniþjónustu SÁ fjallaði um endurgerð knattspyrnuvallarins í Keflavík og þeir Siggeir Ingólfsson, yfirverkstjóri umhverfisdeildar Árborgar, og Brynjar Sæmundsson, golfvallafræðingur og framkvæmdastjóri Grastec ehf., sögðu frá svipuðu verkefni við völlinn á Selfossi.

Þá ræddi Scott Forrest, sölustjóri Jacobsen í Norður-Evrópu, um þróunarferlið í fyrirtækinu, sem framleiðir umhirðutæki fyrir golfvelli.

Ráðstefnunni var haldið áfram í dag, laugardag, með námskeiði í viðhaldi á gervigrasi,  ýmsir fyrirlesarar – jafnt innlendir sem erlendir – munu fjalla um málefni sem tengjast golf-armi iðnaðarins. Eftir hádegi verður efnið blandaðra og ljóst á nýafstöðnum fyrri degi að búast má við mjög áhugaverðum og árangursríkum degi.

Við þetta tilefni var einnig skrifað undir samstarfssamning milli Landbúnaðarháskóla Íslands, GSÍ, KSÍ, ÍTR og SÍGÍ. Ætla þessir aðilar að vinna saman að því að koma á laggirnar námi í grasvallafræðum auk námskeiða sem nefnast „Betri vellir.“

Myndirnar eru frá ráðstefnunni í gær.