Fréttir | laugardagur 13. mars 2010 | 14:40
Ás í þokunni á Hlíðavelli
Marteinn G. Karlsson, kylfingur úr GKJ afrekaði það að fara holu í höggi á 11. holu Hlíðavallar í sl. fimmtudag. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu GKJ.
Aðspurðir sögðust þeir Marteinn, sem er 73 ára, og Bergsteinn meðspilari hans, ekki hafa séð boltann fara í holuna þar sem þoka lá yfir vellinum. Leituðu þeir fyrst fyrir aftan flötina en Marteinn skildi ekkert í því af hverju boltinn fannst ekki þar sem hann stefndi beint á pinna.
Að lokum litu þeir niður í holuna og þar lá hann. Í niðurlagi fréttarinnar á heimasíðu GKJ segir að það megi með sanni segja að margt býr í þokunni, líka hola í höggi.
Heimasíða GKJ.