Fréttir | laugardagur 13. mars 2010 | 10:50

Webb í lykilstöðu á Opna ástralska


Hin magnaða Karrie Webb er í kjörinni aðstöðu til að vinna annan sigur sinn í röð í heimalandinu Ástralíu, en hún er í efsta sæti á Opna ástralska eftir þriðja hringinn í morgun.

Webb sem sigraði glæsilega á ANZ Ladies Masters um síðustu helgi, lék á 70 höggum í morgun, eða þremur undir pari og er með eins höggs forskot á Giuliu Sergas frá Ítalíu. Á fjórum högggum undir er svo Laura Davies og á þremur undir er önnur heimakona, Katherine Hull.

Staðan

Myndir/Golfsupport.nl