Fréttir | laugardagur 13. mars 2010 | 10:35
Kylfingur vikunnar: Tryggvi Guðmundsson
Knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Þessi Eyjapeyi leikur með ÍBV en hefur leikið með FH undanfarin ár og hefur verið sigursæll í Hafnarfirðinum. Tryggvi á að baki farsælan atvinnumannaferil í knattspyrnu og á að baki 42 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann er giftur Hrafnhildi Gunnarsdóttur og eiga þau saman fjögur börn, Guðmund Andra 10 ára, Tinnu Maríu 5 ára, og tvíburanna Tristan Alex og Ísabellu Söru 3ja ára. Hann starfar nú sem markaðsfulltrúi á auglýsingadeild Ríkisútvarpsins.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Ég var alltaf fiktandi í kylfunum öll sumur örugglega frá 10 ára aldri. Stutt að fara á golfvöllinn í Eyjum og maður tók örugglega 15-20 hringi á hverju sumri. Ég varð svo alveg sjúkur þegar ég var 16 ára gamall. Þá ákvað ég að hætta í fótboltanum og það má eiginlega segja að ég hafi búið á golfvellinum það ár. En sem betur fer þá fór ég nú í takkaskóna aftur.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Ég hef verið og er enn í fótbolta með ágætum árangri. Handbolta stundaði ég einnig á veturna til 19 ára aldurs. Afrekaði að spila einhverja drengja- og unglingalandsleiki í þeirri grein.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Helsta markmið mitt er að koma mér undir 10 í forgjöf. Er í kringum 12 núna og ætla mér neðar. Það mun samt taka sinn tíma því að á meðan maður er enn að spila í Pepsi-deildinni í knattspyrnu og með stóra fjölskyldu þá gefst lítill tími í golfið. Ég hlakka samt til að eiga við golfvöllinn í Eyjum í sumar. Orðið mjög langst síðan ég spilaði þar.“
Helstu afrek í golfinu?
„Það hefur nú ekkert merkilegt gerst þar svo sem. Maður hefur nælst sér í einhverja fugla og erni en ekki enn náð henni niður í einu höggi. Ég hef nú sigrað árlegu liðakeppni FH síðustu sumur og vann einnig, fyrir hönd FH, einvígi liðanna í Pepsi-deildinni í fyrra. Mun vonandi keppa fyrir hönd ÍBV í sumar.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Ekkert neyðarlegt sem poppar upp í huga mér annað en að það er alltaf neyðarlegt þegar maður ætlar að klára stutta púttið með annari eða svona hálf kæruleysislega og klikka svo. Kemur sem betur fer ekki oft fyrir.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Ég fer í keppnisferð með ÍBV til Oliva Nova á Spáni í apríl. Golfvöllur er við hótelið okkar og það er á hreinu að ég tekk settið með mér! Aldrei að vita nema maður skelli sér svo í eina golfferð í haust, en ekkert ákveðið. Ætli það fari ekki eftir því hvað maður nær að spila mikið í sumar.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina næsta sumar?
„Spila sem mest held ég bara. En eins og ég sagði áðan þá gæti það orðið erfitt. Það verður ekki fyrr en maður hættir í fótboltanum að það fer eitthvað að gerast í forgjöfinni minni.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Ég er nokkuð flottur með Driverinn og járn 3-7. Eins nokkuð öruggur með pútterinn á dansgólfinu. Veikleiki minn liggur í „chippunum“ og svo er ég skelfilegur á ströndinni. Eins er sveiflan mín eða öllu heldur staða mín í sveiflunni rannsóknarefni.“
Hver er uppáhalds kylfingurinn (innlendur og erlendur) og af hverju?
„Ég var alltaf mikill Nick Faldo maður. Hann var sá besti þegar að ég var mest að fylgjast með. Tigerinn hefur svo síðustu ár auðvitað borið höfuð og herðar yfir aðra kylfinga. Fannst samt alltaf vanta léttleikann í hann. Nú er smá bull á kvikindinu og verður gaman að sjá hvernig hann kemur til baka og hvernig honum verður tekið. Eins verður gaman að sjá hvort hann verði ekki léttari á vellinum. Hef alltaf gaman að mönnum sem brosa og grínast aðeins. Hér heima er það og hefur alltaf verið Þorsteinn Hallgrímsson. Þar er einmitt léttleikinn í fyrirrúmi.“
Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Væri fínt ef það mætti henda boltanum úr glompu. Þá væri maður alltaf upp við pinna eftir að hafa lent í sandinum.“
Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Hef nú afrekað að vera atvinnumaður í fótbolta í 8 ár og það var yndislegur tími. Kannski hefði maður getað orðið atvinnumaður í golfi ef maður hefði ekki byrjað aftur í fótboltanum. Ég endurtek, kannski.“
Fylgist þú mikið með golfi (erlendum mótum eða mótaröðinni hér heima)?
„Reyni oftast að taka lokahringinn á þessu stærstu og helstu mótum á sunnudagskvöldum. Tekst þó ekki alltaf. Hef ekki farið og horft á mót „live“ hér á landi. Var þó kylfuberi fyrir þessa bestu á golfmóti út í Eyjum hér í „den“.“
Staðreyndir:
Nafn: Tryggvi Guðmundsson.
Klúbbur: Teigur, en mun væntanlega detta inn í GV í sumar.
Forgjöf: 11,9 eins og staðan er í dag minnir mig.
Golfpokinn (hvaða kylfur eru í pokanum hjá þér): 1,3,5 tré. 3-9 járn, pútter, pw og sw.
Golfskór: Footjoy.
Golfhanski: Nike og svo eitthvað bland neðst í pokanum.
Markmið í golfinu: Hafa gaman að þessu. Hola í höggi væri svo ekki ónýtt á CV-ið.
Fyrirmynd: Steini Hallgríms í golfinu :-).
Uppáhalds matur: Andabringur ala Hablí.
Uppáhalds drykkur: Floridana heilsusafi, kók, bjór og mjólk. Allt eftir stað og stund.
Ég hlusta á: Allt mögulegt. Er samt hrifnastur af Black Eyed Peas at the moment.
Besti völlurinn: Vestmanneyjar hér heima. Bærums Verk í Noregi.
Besta skor (hvar): Nokkur góð en man ekki hvað er bezt, án gríns. Það er slakt.
Besta vefsíðan: Er mest inn á mbl.is og fotbolti.net og verð því að gefa þeim stigið.
Besta blaðið: Svakalega lítill blaðakarl. Skila því auðu.
Besta bókin: Get ekki gert upp á milli bóka Arnalds Indriða. Þær eru flottar.
Besta bíómyndin: Schindler´s List, The Shawshank Redemption, Seven, Kill Bill myndirnar og Inglorius Bastards. Ómögulegt að velja eina fram yfir aðrar á þessum lista.
Myndir frá fotbolti.net