Fréttir | föstudagur 12. mars 2010 | 10:45

Leik frestað í Puerto Rico


Ekki var fyrsti keppnisdagur á Puerto Rico Open langur þar sem leik var frestað vegna rigningar þegar aðeins 18 kylfingar höfðu slegið af teig og aðeins níu lokið sinni fyrstu holu.

Þetta mót er hluti af PGA mótaröðinni og er haldið meðfram CA Championship WGA-heimsmótinu sem fram fer á Doral. Ekki eru margir kylfingar úr fremstu röð á þessu móti þar sem þeir eru uppteknir við að glíma við Bláa Skrímslið (Blue Monster völlinn á Doral).

Þessi mót hafa hins vegar reynst góður vettvangur fyrir kylfinga í lægri þrepum virðingarlistans til að sýna sig og sanna, en meðal keppenda í Puerto Rico að þessu sinni er John Daly, sem er búinn að vekja athygli fyrir flest annað er frammistöðu á golfvellinum nú sem fyrr.

Mynd úr safni golfsupport.nl

Skip Kendall er efstur, ef svo mætti segja, en hann fékk örn á sinni einu holu eftir að hafa slegið ofan í með 7-járni af rúmlega 140m færi.