Fréttir | föstudagur 12. mars 2010 | 09:13
Seve að ná sér eftir fall úr golfbíl
Betur fór en á horfðist þegar meistarakylfingurinn fyrrverandi, Seve Ballesteros, meiddist á höfði eftir að hafa fallið út úr golfbíl í síðustu viku.
Seve, sem var skorinn upp vegna heilaæxlis árið 2008 og hefur staðið í erfiðri endurhæfingu síðan, lenti á höfðinu og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var undir eftirliti lækna í fjóra daga en hefur nú náð sér að fullu að því er fregnir herma.
Seve hefur tilkynnt um þátttöku sína í sérstöku móti í aðdraganda Opna breska meistaramótsins í sumar, en þá koma saman gamlir meistarar líkt og Seve, Jack Nicklaus, Arnold Palmer og Gary Player í fjögurra holu keppni.
Mynd úr safni golfsupport.nl