Fréttir | fimmtudagur 11. mars 2010 | 23:25

Schwartzel efstur á Doral


Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel situr á toppi CA Championship eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 67 höggum, eða fimm undir pari. Schwartzel vakti mikla athygli í upphafi tímabilsins þar sem hann sigraði á tveimur mótum í röð og er greinilega að finna sig á Blue Monster vellinum á Doral.

Á meðal þriggja kylfinga í öðru sæti er Ástralinn Robert Allenby, sem var með mikla yfirburðastöðu framan af hring þar sem hann var kominn átta högg undir par eftir aðeins tólf holur, en tókst með einskærri óheppni að henda þeirri forystu frá sér með því að fá fjóra skolla á síðustu fjórum holunum.

Jafnir honum eru Vijay Singh og Ernie Els, en fyrir neðan það er þéttur hópur.

Ekki voru þó allir að ná sér á strik þar sem t.d. Retief Goosen og Rory McIlroy eru á fjórum yfir. Goosen byrjaði á erni á fystu holu, en átti afar köflóttan hring eftir það þar sem hann fékk m.a. tvo skramba. Rory átti líka slakan hring almennt þar sem hann var með sex skolla á móti tveimur fuglum.

Staðan

Mynd/golfsupport.nl