Fréttir | fimmtudagur 11. mars 2010 | 11:50

Þórður Rafn sáttur við fimmta sætið


Þórður Rafn Gissurarson, kylfingur úr GR, varð í fimmta sæti á Barton Intercollegiate mótinu í bandaríska háskólagolfinu á dögunum. Leiknir voru tveir hringir þar sem Þórður lék fyrri hringinn á 72 höggum og þann seinni á 70 höggum og varð samtals á tveimur höggum undir pari. Hann var einungis tveimur höggum frá toppsætinu, en segist í samtali við Kylfing.is una sér vel með fimmta sætið.

„Ég er frekar sáttur með 5. sætið. Þó svo að ég hafi einungis verið tveimur höggum frá fyrsta sæti þá þýðir ekkert að hengja sig upp á því, heldur taka allt það jákvæða úr mótinu. Það væri auðvelt að finna tvö pútt sem hefðu getað farið í holuna en svona er golfið.“

Þórður, sem leikur fyrir hönd St. Andrews háskólans í Norður Karólínu, bætir því við að mótið í ár hafi verið nokkuð sterkt þar sem allnokkrir kylfingar úr efstu deildar skólum voru meðal keppenda. Það sést vel á því að í 35 ára sögu mótsins hafa einungis sjö keppendur spilað báða hringina undir pari, en nú voru þeir fimm, sem jafnframt að völlurinn er afar krefjandi og segir Þórður að flatirnar séu sérlega erfiðar og hafi farið illa með marga.

„Yfirhöfuð voru hringirnir hjá mér mjög stöðugir. Á fyrri hringnum þrípúttaði ég tvisvar með stuttu millibili í byrjun þar sem ég var ekki á réttum stað á flötunum. Náði síðan að koma mér til baka á sléttu með góðum púttum og að vera aðeins ákveðnari í innáhöggunum. Tók beint mið á flaggstöngina og setti boltann það nálægt að ég átti góðan möguleika að næla mér í fugl á nokkrum brautum.
Seinni hringinn var ég að pútta og vippa mjög vel. Ég var einungis með 25 pútt og náði að bjarga pari þegar ég var búinn að koma mér í erfiða aðstöðu. Ég er búinn að breyta púttrútínunni og hugsa núna öðruvísi þegar ég er að lesa púttin og það hefur skilað sér í að fleiri pútt hafa dottið niður. Ég var kominn 3 undir eftir 6 holur en náði ekki að fara dýpra en það. Fékk síðan klaufalegan skolla á 16 holu og paraði síðustu holuna sem er par 5 en spilast sem par 4.“

Þórður bætir því við að hann sé mun stöðugri nú en fyrir viku þar sem hann fékk t.d. aðeins þrjá skolla í þessu móti. „En það er samt þremur of mikið. Ég hef lagt áherslu á stutta spilið og mismunandi boltaflug með járnunum frá því í síðasta móti og hef ég verið að slá mun betur og stutta spilið er búið að batna mikið. Núna þarf ég að vinna í því að venjast því að vera nokkrum undir pari. Er eitthvað andlegt sem ég þarf að vinna í og ég mun leggja kapp á það næstu vikurnar.“

Næsta mót Þórðar er eftir tvær vikur og er þar um að ræða eins konar undirbúningsmót fyrir mótið sem er vikuna á eftir sem er afar mikilvægt. Þar munu þeir mæta mörgum góðum liðum sem þeir þurfa að vinna til að komast áfram í svæðisúrslitin (regionals).

Lokastaðan á mótinu