Fréttir | fimmtudagur 11. mars 2010 | 10:52
Valdís endaði í 25. sæti
Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL lenti í 25. sæti á UNLV Spring Rebel Invitational sem lauk í Nevada í gær. Hún lék þriðja og síðasta hringinn á 79 höggum, eða sjö yfir pari, líkt og hún gerði á öðrum hringnum, sem voru nokkur vonbrigði eftir magnaða frammistöðu á fyrsta hringnum þar sem hún lék á 67 höggum, eða fimm undir pari.
Valdís fór ekki nógu vel af stað í gær þar sem hún var komin á fjóra yfir pari eftir sex holur, en hún fékk eftir það tvo fugla í röð. Hún náði svo ekki flugi á seinni níu þar sem hún fékk þrjá skolla og einn skramba.
Skorkort Valdísar:

Lokastaðan
Mynd/kylfingur.is