Fréttir | fimmtudagur 11. mars 2010 | 10:50
Húsfyllir á fræðslufundi GKG
Í vikunni fór fram vel heppnaður fræðslufundur í golfskála GKG fyrir félagsmenn. Fjöldi félaga mætti og hlustaði á fróðleg erindi margra af okkar bestu kylfinga og golfkennara.
Andrés Davíðsson hélt fyrirlestur um mikilvægi þess að vera með klæðskerasaumaðar kylfur og fjallaði sérstaklega um púttera í því sambandi. Því næst héldu Úlfar Jónsson og Derrick Moore fyrirlestur um mikilvægi markmiðasetningar og að æfa samkvæmt æfingaáætlun. Að lokum töluðu Sigmundur Einar Másson og Birgir Leifur Hafþórsson um leikskipulag, mataræði og hugarþjálfun. Afreksunglingar klúbbsins og foreldrar þeirra komu með kaffi og kökur og seldu til fjáröflunar fyrir æfingaferð þeirra til Spánar í apríl.

Kvöldið þótti heppnast mjög vel lýstu viðstaddir yfir mikilli ánægju með framtakið. Troðfullt var í húsinu en um 90 manns sóttu fundinn. Ljóst er að fleiri slíkir fræðslufundir verða haldnir fyrir félagsmenn GKG í framtíðinni.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á kvöldinu.