Fréttir | fimmtudagur 11. mars 2010 | 09:46
Rory framan á Tiger Woods 2011
Tiger Woods verður eigi einsamall framan á hulstri nýjustu útgáfu tölvuleiksins Tiger Woods PGA tour, því að ungstirnið Rory McIlroy sést þar í bakgrunninum. Þetta er í fyrsta sinn sem Tiger er ekki einn framan á leiknum sem kom fyrst út árið 1998.
Ekki er það svo að EA Sports, sem framleiðir leikinn, sé að dreifa athyglinni frá Tiger í kjölfar vandræða hans, heldur vísar myndskreytingin til þess að í leiknum er hægt að taka þátt í Ryder bikarkeppninni milli Bandaríkjanna og Evrópu.
Einn af hönnuðum leiksins sagði í viðtali nýlega að til hafði staðið að hafa evrópskan kylfing á hulstrinu allt frá því í október þegar EA Sports sömdu við forsvarsmenn Ryder bikarkeppninnar.
Rory sagði í tilkynningu að það væri mikill heiður að fá að vera á hulstri leiksins með Tiger þar sem hann sé átrúnaðargoð hans frá barnæsku.
Rory bætti við: „Ryder bikarinn hefur alltaf verið uppáhalds íþróttaviðburðurinn minn og ég vona að fá tækifæri til þess að leika fyrir hönd Evrópu síðar í ár. Það væri mér afar mikilvægt.“
Varla er þó hægt annað en að minnast á minniháttar fjaðrafok sem varð síðasta vor þegar Rory sagði beint út að hann hafi alltaf haft meiri mætur á risamótum, þ.e. einstaklingsmótum, frekar en Ryder keppnum. Sjá hér.
H: Golfweek