Fréttir | miðvikudagur 10. mars 2010 | 18:15
Puma kaupir Cobra
Íþróttarisinn Puma hefur keypt vörumerkið Cobra af Acushnet, sem einnig framleiðir Titleist-vörur og FootJoy skófatnað. Tilkynnt var um kaupin í dag, en kaupverð var ekki gefið upp.
Í tilkynningu frá Acushnet sagði að fyrirtækið hygðist nú leggja enn meiri kraft í markaðssetningu á Titleist og FootJoy, en samningur þessi þykir koma báðum aðilum vel.
Puma stekkur þar inn í vel þekkt merki sem er stutt af kylfingum úr fremstu röð, m.a. Camilo Villegas og Ian Poulter, en Acushnet losnar um leið úr þeirri stöðu að vera að keppa við sjálft sig, þar sem Titleist-kylfur hafa höfðað til mun breiðari markhóps en Cobra.
Búist er við að gengið verði endanlega frá sölunni á næstu vikum eða mánuðum.
H: Golfdigest