Fréttir | þriðjudagur 9. mars 2010 | 17:42
Video: Fimm bestu högg helgarinnar í Bandaríkjunum
Það var líf og fjör á mótaröðum vestanhafs um helgina en bæði var leikið á PGA-mótaröðinni og Champions öldungamótaröðinni. Það voru þeir Camilo Villegas og Fred Couples sem stóðu uppi sem sigurvegarar en auk þess litu fjölmörg glæsileg golfhögg dagsins ljós.
Hér að ofan má sjá myndband með fimm bestu höggum helgarinnar. Kylfingar eins og Vijay Singh, Couples og Villegas koma þar við sögu og sýna okkur hvernig á að leika golf.
Mynd/golfsupport.nl: Camilo Villegas er litríkur og góður kylfingur.
jjk@vf.is