Fréttir | sunnudagur 7. mars 2010 | 13:02

Bjarni Þór tekur við Húsatóftavelli – „Spennandi verkefni“


Bjarni Þór Hannesson var í gær ráðinn vallarstjóri á Húsatóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Bjarni skrifaði undir samning til loka október á þessu ári með ákvæði um áframhald á starfi hjá klúbbnum ef vel gengur.

Bjarni, sem tekur við starfinu á Húsatóftavelli af Guðjóni Einarssyni, er sonur Hannesar Þorsteinssonar golfvallarhönnuðar, en verið er að stækka Húsatóftavöll í 18 holur eftir hönnun Hannesar. Bjarni hefur verið með annan fótinn á golfvelli frá því að hann var lítill patti á Akranesi og hefur unnið á golfvelli frá unglingsaldri. Hann hefur m.a. starfað á Korpúlfstaðavelli og var um tíma vallarstjóri á Garðavelli á Akranesi.

Hvers vegna sóttist þú eftir vallarstjórastarfinu á Húsatóftavelli?
„Það var margt sem spilaði inn í þá ákvörðun. Ég vildi vera áfram á Íslandi og vissi af þeim hlutum í gegnum pabba sem voru í gangi hjá GG. Pabbi fór með mér hingað til Grindavíkur, sýndi mér stækkunarframkvæmdirnar og það var mjög spennandi,“ segir Bjarni sem steig ein af sínum fyrstu keppnisskrefum á Húsatóftavelli.

„Þegar ég var tíu ára gamall þá lék ég mína fyrstu sveitakeppni með Leyni á Húsatóftavelli þannig að ég tengist þessum velli í sögulegu samhengi. Mér leist einnig vel á stjórnina og þær hugmyndir sem hún hafði fram að færa. Það er metnaður í að gera þetta vel og fagmannlega, sem ég er spenntur fyrir að taka þátt í.“

Af Sunningdale yfir á Húsatóftavöll

Það er óhætt að segja að Bjarni sé mikill hvalreki fyrir lítinn klúbb eins og Golfklúbb Grindavíkur sem telur rétt rúmlega 200 meðlimi. Bjarni býr yfir mikilli þekkingu á golfvallarfræðum og hefur m.a. unnið á St. Andrews og Sunningdale völlunum í Bretlandi.

Hann er með Master gráðu í Íþróttavallayfirborðstæknifræði en hann hefur bæði stundað nám í Bretlandi og í Bandaríkjunum. „Síðast þegar ég var að vinna á golfvelli þá var það á Sunningdale vellinum í Englandi og var að vinna á Opna breska öldungamótinu. Það er skrítin tilhugsun að fara úr því að slá flatirnar fyrir Greg Norman  og yfir í að vinna á Húsatóftavelli,“ segir Bjarni léttur í bragði en hann mun hefja störf á Húsatóftavelli um miðjan marsmánuð.

Myndir/Kylfingur.is: Á efstu myndinni má sjá Pál Erlingsson, formann GG, og Bjarna Hannesson handsala samningin. Á neðstu myndinni má sjá Bjarna við 12. flötina á Húsatóftavelli.

jjk@vf.is