Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 8. febrúar 2010 | 17:15

Góð þátttaka í þriðja púttmóti Hraunkots


Það var margt um manninn í þriðja púttmóti Hraunkots sem fram fór í gær. Yfir 70 manns tóku þátt í mótinu en það virðist vera sem að íslenskir golfáhugamenn séu að koma vel undan vetri, púttlega séð, því mörg góð skor sáust í Hraunkoti í gær.

Í karlaflokki var það Bjarki Dagur Sigurðsson úr Keili sem púttaði best en hann þurfti aðeins 27 pútt til að ljúka holunum 18 en það þýðir að hann hefur aðeins þurft eitt pútt á helmingi vallarins. Þrír urðu svo jafnir í 2. sæti á 28 púttum.

Í kvennaflokki var það Bryndís Ragnarsdóttir úr Keili sem var fimust með pútterinn og notaði 28 pútt á holurnar 18. Þrjár konur urðu svo jafnar í 2. sæti á 30 púttum.

Ljósmyndari Kylfings.is brá sér í Hraunkot og tók nokkrar myndir eftir vafasama frammistöðu á púttgolfinu. Myndirnar má sjá með að smella hér.

Hér má sjá lokastöðuna í þriðja mótinu.

Myndir/Kylfingur.is

jjk@vf.is

 

 

Til Baka