Fréttir | mánudagur 8. febrúar 2010 | 15:24
McGowan bíður eftir ákvörðun Woods
Enski kylfingurinn Ross McGowan þarf að bíða eftir ákvörðun frá Tiger Woods um hvort að hann fær keppnisrétt á Accenture mótinu á Heimsmótaröðinni. Aðeins 64 kylfingar fá keppnisrétt í mótinu og kjósi Tiger að taka ekki þátt mun McGowan taka sæti hans.
Það mun vafalaust draga athylgina frá mótinu kjósi Tiger að taka ekki þátt því Phil Mickelson hefur nú þegar tilkynnt að hann muni ekki vera með. Hann ætlar að skella sér í frí með fjölskyldunni sem ekki var hægt að fara í á síðasta ári þegar eiginkona hans greindist með krabbamein.
Aðrir kylfingar munu því vera í startholunum og vonast eftir að fá keppnisrétt enda er verðlaunafé á mótinu með hærra móti.
Myndir/golfsupport.nl: Það er margt sem Tiger Woods þarf að svara, m.a. hvort hann verður með á Accenture mótinu. Á efri myndinni má sjá Ross McGowan sem væntanlega vonar að Tiger verði ekki með.
jjk@vf.is