Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Fréttir | mánudagur 8. febrúar 2010 | 13:02
Bakið að plaga McIlroy
Kylfingurinn Rory McIlroy frá Norður-Írlandi mun hitta sérfræðing til að athuga meiðsli í baki sem hafa tekið sig upp nýlega hjá þessum unga kylfingi.
Talið er að umfangsmiklar æfingar eigi sök að máli en McIlroy hefur æft upp í átta tíma á dag að undanförnu til að undirbúa sig fyrir sitt fyrsta tímabil á PGA-mótaröðinni.
„Bakið hefur verið til vandræða að undanförnu þannig að ég ætla að láta líta á það. Ég held að þessi meiðsli hafi orðið til við miklar æfingar en þetta er ekkert stórvægilegt, kítlar aðeins,“ sagði McIlroy.
„Það er ekkert mál að sveifla kylfunni en þegar ég þarf að beygja mig í púttum og við að taka upp boltann, þá finn ég til sársauka. Ég vil hafa varann á og fer á hverju ári í ýmsar rannsóknir. Ég verð tilbúinn í slaginn, en þarf bara smá hvíld,“ sagði kylfingurinn ungi sem situr nú í 7. sæti á heimslistanum.
Myndir/golfsupport.nl: Rory McIlroy á golfvellinum um helgina í Dubai.
jjk@vf.is






