Bookmark and Share

Fréttir | mánudagur 8. febrúar 2010 | 12:23

Schwartzel kylfingur mánaðarins á Evrópumótaröðinni


Charl Schwartzel frá Suður-Afríku hefur verið útnefndur kylfingur mánaðarins fyrir janúarmánuð á Evrópumótaröðinni. Schwartzel fékk sannkallaða draumabyrjun á árinu þegar hann vann bæði Africa Open mótið og svo Joburg Open viku síðar.

Þessi 25 ára kylfingur hefur verið að bæta sig jafnt og þétt undanfarin ár og skipar nú sess sem einn af bestu kylfingunum á Evrópumótaröðinni. Hann hefur einnig endað ofarlega á töflunni í undanförnum mótum og á vafalaust eftir að blanda sér í baráttuna um fleiri sigra á árinu.

„Það er augljóst að ég er stoltur af því að vera útnefndur kylfingur mánaðarins. Það er ekki hægt að fá of mörg verðlaun,“ sagði Schwartzel léttur í bragði á heimasíðu mótaraðarinnar.

Mynd/golfsupport.nl: Charl Schwartzel hefur verið sjóandi heitur á árinu.
jjk@vf.is

 

 

Til Baka