Fréttir | mánudagur 8. febrúar 2010 | 08:29
Heitur Stricker í annað sætið á ný
Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker er kominn í annað sætið á Heimslistanum í golfi eftir að hafa borið sigur úr býtum á Northern Trust Open mótinu sem lauk í gærkvöldi á PGA-mótaröðinni.
Hann skýst upp fyrir Phil Mickelson í annað sætið, en Stricker var í þessu sama sæti í þrjár vikur í september á síðasta ári. Sigurinn í gær var hans áttundi á PGA-mótaröðinni en hann vann þrjú mót á síðasta ári og lítur út fyrir að vera í toppformi um þessar mundir.
Miguel Angel Jimenez stekkur einnig upp listann eftir að hafa haft betur gegn Lee Westwood í bráðabana um sigurinn í Dubai Desert Classic mótinu. Hann fer upp um 60 sæti og situr nú í 30. sæti en það gefur honum sjálfkrafa keppnisrétt á Masters mótinu í apríl.
Það er áhugavert að aðeins fjórir Bandaríkjamenn eru á topp-10 á Heimslistanum því hinir sex eru Evrópubúar. Margir golfspekúlantar eru á því að árið 2010 verði ár Evrópumanna í golfinu og spurning hvort að það rætist.
Sjá stöðuna á Heimslistanum
Myndir/golfsupport.nl: Steve Stricker hefur átt góðu gengi að fanga að undanförnu. Á neðri myndinni má sjá Miguel Angel Jimenez.
jjk@vf.is